14.4.2009 | 20:42
Er ekki hægt að koma honum í skrifstofuvinnu?
Rétt fyrir páska framdi 15 ára gömul stúlka í Svíðþjóð sjálfsmorð. Hún gerði það aðeins nokkrum klukkutímum áður en hún átti að vitna gegn manninum sem var ásakaður um að ítrekað hafa nauðgað henni síðastliðið ár. Hún var svo hrædd við hann að dauðinn var auðveldari en að þurfa að mæta honum aftur. Þar sem höfuðvitnið var ekki lengur á lífi, var málið lagt niður og enn einn nauðgarinn slapp við dóm. Þetta er hörmulegt mál og því miður ekki það eina.
Það er mjög erfitt fyrir fórnarlömb nauðgara að vitna og oft upplifa þau réttarhöldin eins og aðra nauðgun. Þegar svo málið er lagt niður vegna skorts á sönnunargögnum, er ennþá erfiðaða að upplifa skömmina, bæði af nauðguninni og að vera ekki trúað.
Ég hef ekki hugmynd um hvort séra Gunnar var sekur eða ekki. Hitt fer varla á milli mála að sóknarbörn hans upplifðu kynferðislega áreittni. Mér finnst þó að atvinnurekandi Gunnars, ætti að virða börnin það mikið að Gunnar fái starf þar sem ekki er hætta á að sóknarbörnin þurfi að upplifa kynferðislega áreittni aftur. Það hlýtur að vera hægt að finna vinnu fyrir hann þar sem hann hefur ekkert með börn að gera. Trúarofstækishópar og kaþólksa kirkjan eru þekkt fyrir að hylma yfir með perrum. Ég hélt að íslenska þjóðkirkjan væri skárri.
|
Gunnar tekur við 1. júní |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



agustolafur
eggmann
frisk
gurrihar
maggadora
svanurmd
vefritid
malacai
asaoghans
baldurkr
brandarar
rustikus
freedomfries
alit
gudruntora
hallarut
johannbj
nonniblogg
hugsadu
kolbrunb
nanna
ragganagli
fjola
toshiki
vantru
vest1
ylva
icerock






Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.